21.11.2010 14:31:00 / Finnur
Sælir virðulegu HFH meðlimir.
Nú er kominn sá tími árs þegar mér verður hugsað til góðra jeppaferða í góðra vina hópi.
Eins og eðlilegt er þá verða breytingar á aðstæðum manna og einhverjir meðlimir hafa dregið sig í hlé, aðrir farið erlendis og svo framveigis. Nú er aftur á móti að rofa til og útlit fyrir að um jólin verið stór hluti kjarna HFH staddur á landinu og til í slaginn. Þess vegna finnst mér upplagt að við skipuleggjum Góða HFH ferð um hátíðarnar.
Hveravellir hafa skipað stóran sess hjá HFH gegnum tíðina og margar ódauðlegar minningar til úr þeim ferðum. Þess vegna vil ég leggja til að við tökum stefnuna yfir langjökul og inn á Hveravelli. Aðrir áfangastaðir er vel í myndinni og endilega komið með tillögur ef mönnum líst ekki á Hveravelli. Annað sem við þurfum að ákveða er hvenær við viljum fara og hve lengi. Þessi jól eru reyndar þau verstu í manna minnum hvað frídaga varðar og einhverjir sem eiga að vinna þessa daga. En ef menn leggja til við vinnuveitendur með góðum fyrirvara að fá 2 daga
í frí þá ætti það að vera mögulegt.
Ég legg til tveggja daga ferð 28.des til 29 des. Endilega komið með aðrar tillögur að tíma.
Ástand Flotans:
Villi: 44" patrol klár í ferð( að ég held)
Hjörtur: 38" Patrol klár í ferð( að ég held)
Gísli: 38" willys á eftir að setja hásingar undir
Örninn: 44" patrol á eftir að setja boddý á bílinnn
Finnur:44" willys, sjálfskipting, eldsneytiskerfi, stýrisgangur og fleira eftir að laga.
Jón Ingi: 36" terrano-klár í ferð (að ég held)
Svo er Hjörtur "hinn" að koma til landsins um hátíðarnar og er æstur í að komast á fjöll
Hjörtur Már(Hjörtur hinn) 38" LC 60 klár í ferð (að ég held)
Ef einhverja bíla vantar á listan bætið þvi við í comment.
Ég, gísli og örninn þurfum að taka á því ef þessar viðgerðir eiga að nást á tilsettum tíma, en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Ég legg til að Siggi Hjörtur verði heiðursgestur ferðarinnar, enda langt síðan hann hefur sést á Hveravöllum.
Þetta getur orðið hin mesta skemmtun.
kv.Finnur
»
27.10.2010 14:50:21 / Villi
Eins og sumir vita þá fékk ég alvarlegt höfuðhögg fyrir viku síðan og féll í dá, þegar ég vaknaði aftur var ég búinn að kaupa mér Patrol bíl. Þetta er talinn vera mesti viðsnúningur allra tíma og þykir einnig tíðindum sæta. Ég býst fastlega við að fá að heyra "það" og marga brandara næstu 40 árin í jeppaferðum. En ég ætla allavega að prófa þetta í bili og sjá hvernig svona bíll reynist í minni þjónustu.
Í grófum dráttum má lýsa bílnum á þessa leið:
Dökkblár að lit en þó með gráa sílsa og brettakanta.
3,0 Diesel, vélfræðiundrið frá Nissan Motor corporation.
Handvirkur gírkassi með 5 mismunandi hröðum
Venjulegur millikassi með háu drifi og frekar háu lágu drifi
aukamillikassi með mun lægra lága drifi, 1:3,74
Drifhlutföll eru 1:5,42
Heildarniðurgírun er 1:186 (það er rosa mikið sko...eða allavega talsvert...)
Hjólbarðar eru 44 þumlungar í þvermál af Dick Cepek gerð, "16,5 breiðar felgur
Sumarhjólbarðar eru "38 mudder á "12 breiðum krómfelgum (held ég)
Svo er stefnt að því að koma sér upp gangi af "39,5 vetrardekkjum, negla þau svolítið og setja á "14 breiðar stálfelgur.
Upprunaleg driflæsing í afturdrifi, ARB loftlæsing í framdrifi.
ARB dæla falin einhversstaðar í skottinu, aukaúttak í grilli
Fini loftdæla með spiltengi
NMT sími (85? ????, spliffar ekki diff núna..)
VHF talstöð frá Kenwood
110/170w IPF kastarar á grind að framan
Vinnuljós á toppbogum, lýsa til hliðar og aftur
Prófíltengi framan og aftan.
Bíllinn er kominn á einhverja aðra gorma en upprunalega, og virkar hastur innanbæjar og í grjóti á harðpumpuðum dekkjum, en á 60-70 á ósléttum mel var hann stórfínn.
Hvernig er svo staðan á öðrum HFH meðlimum, eru menn með einhverja bíla klára í ferðalög?
»
15.02.2010 00:41:40 / Hjotti
Er ekki kominn tími til að fara endurlífga þessa síðu aðeins? Svona áður en hún verður flutt á þjóðminjasafnið til varðveitingar!
Þó að lítið hafi gerst í ferðamálum þessa klúbbs er hann síður en svo búinn að syngja sitt síðasta.
Menn eru búnir að vera annsi duglegir við að uppfæra fáka sína síðasta árið eða tvö, svo og mikill hluti flotans orðinn svona-keppnis og mætti af honum ætla að félagar hafi ekki séð lítraverðið á olíu og bensíni síðan 1987!!
Villi gerði sér lítið fyrir og uppfærði Hilux um sirka 0,6 lítra þegar hann fleygði snjósleða í skiptum fyrir eina rellu úr 4-runner. Var það miikið stökk og virkaði Lux bara svona fjandi vel með nýja hjartað og reyndar svo vel að greinahöfundur bara varð hálf kjaftstopp. En setti að lokum 2 þumla upp til að sýna ánægju sína. En adam var ekki lengi í paradís og turbo sagði bless og hefur ekki sést síðan og enn er verið að reyna fá það heim til landsins. Frétts hefur að setja eigi upp söfnunarsjóð svipaðan og var gerður fyrir Sophiu Hansen. Vonast er samt eftir betri árangri.
Gísli kvaddi gamal vin og hélt áfram með sitt líf, fékk sér nýjan og tók það hann dáldin tíma en virðist samt loksins vera búin að taka Wrangler í sátt. Smíðað hefur verið ötullega í nýju elskuna undanfarinn misseri og er markmiðið sett á fulla skoðun á morgun eða hinn. Vonandi fara þá að heyrast 8gata Ford öskur í dalnum
Finnur er farinn að sjá fyrir endann á lystasmíð sinni á gamla góða Gulrótar-mobile sem að í daglegu tali kallast Willis. Var smíðin prófuð milli síðustu jólamáltíða og reyndist í alla staði vel fyrir utan eitthvað slappa miðstöð og bitch-slappandi húdd!! En á öðrum degi jóla eða svo sagði gamli AMC stopp! "Fór á flakk, tútnaði út og sprakk".
En nýtt hjarta var verslað en ekki er vitað hvort það er komið í brjóstholið.
Leó trappaði sig niður á milli torfæru móta með Nító-knúinn Pajero. Söng hann eins og kvalinn grís en vakti mikla kátínu viðstaddra. Síðast sást til hanns akandi um á keppnis útgáfu af Barbie bílnum með spússu sína við hlið sér.
Örninn bætti enn í patrol-safnið og fékk einn með langþráðri 4.2vél. Er nú sú rella kominn í rauða risan og 2.8 vél komin í hinn í staðin.
Má geta þess að 2.8vélin var föndruð úr 13úrbræddum móturum, gömlum músarstiga og gömlu súkkulaði dagatali. Síðast fengust óstaðfestar fréttir að loft-kodda system væri langt á veg komin í afturendan.
Jón Ingi skrensar enn á sínum Terrano við hátíðleg tilefni.Var honum klappað hæfilega fyrir stuttu, fengið lánað eldbana tæki og brunað í Hyrnuna í skoðun. Eitthvað líkaði Kristjáni skoðunnarmanni ill gleði-stans-stöngin milli sætana og sagði "SKO!" grænn miði handa þér!
Hefur Jón ekki þorað sýna Ólafi föður sínum þennan fræga græna miða af ótta við harkaleg pólitísk viðbrögð.
Greinahöfundur hefur varið sínum síðustu dögum að reyna kenna sínum Patrol að spila Olsen Ólsen með litlum árangri. Patrol spilar bara Inn og út og virðist ekki skylja að það er frekar kynferðisleg athöfn! En fagri blakkur lætur ekki segjast en er samt hættur að prjóna eftir að hann fékk spil og spilastokk.
En svo svona í lokin eru nokkrar spruningar um óstaðfestar fréttir?
"Er Helgi búinn að sigra Himmelbjergetið?"
"Heyrst hefur að Dóra sé búin að panta poppvél í Willisin"
"Heyrst hefur að Kjartan sé að ganga í Patrol klúbbinn"
Takið hinni kostulegu kveðju
»
17.08.2009 20:44:12 / Villi
Svona rétt áður en það líða 5 mánuðir á milli skrifa hér inni er best að skrifa fáeinar línur.
Nú um síðastliðna helgi var haldin alveg dísuð afmælisveisla í Borgarfirðinum í tilefni þess að Finnur varð 1/4 aldar gamall.
Þar komu við sögu:
Erfiðir gamaldags tjaldvagnar
Fáein lambalæri, grilluð
Jagermeister
skynditæmibúnaður fyrir bjórflöskur
Æðislegar afmælisgjafir
varðeldur
Bolla
Queen session
poolkjuðar
Rakvél
Tjöld í trjám
Heitur pottur
Blöðrur
Nitro kútur.
Allavega þá sé ég ástæðu til að þakka vel fyrir mig, og þess má til gagns og gamans geta að ég hef ekki orðið svona þunnur í nokkur ár.
»
31.03.2009 15:57:41 / Villi
...á bruarrass.blogcentral.is
Tjekkið sérstaklega á hinum hressa húseiganda
http://www.youtube.com/watch?v=PBCSDUOHioonjótið vel!
Villi
»
29.03.2009 16:46:55 / JonIngi
Nú líður að páskum og þá er rétt að spyrja hvort ekki sé hugur í mönnum og konum að gera eitthvað.
Mig persónulega langar að fara allavegana eina langa dagsferð, ekki bara þetta venjulega þegar ætlum að hittast í Króksfjarðanesi kl 12 og engin mætir fyrr en eitt, og þá á eftir að tanka og kíkja inn í Gautsdal sem endar með því að við erum aldrey komnir upp á Tröllatunguheiði fyrr en klukkan 3.
Ég vil að við plönum ferð þar sem mætt verður 9 eða 10 um morguninn á brottfararstað og farið hálftíma síðar, þeir sem eru ekki mættir við brottför verða bara eftir og þá er bara sorry Stína, þetta hefur aldrey hennt mig áður, reyndu bara að kyssa hann aðeins og þá rýkur hann upp

Hverjir eru til í þetta, hvert langar menn að fara og hvaða dagur henntar mönnum best?
Svo er kanski ágætt ef menn taka fram hvaða daga þeir væru lausir til að fara í aðrar óskipulagðar ferðir þar sem við ætlum að hittast í Króksfjarðanesi kl 12 og engin mætir fyrr en eitt, og þá á eftir að tanka og kíkja inn í Gautsdal sem endar með því að við erum aldrey komnir upp á Tröllatunguheiði fyrr en klukkan 3. Þær ferðir eru mjög skemmtilegar en mig langar bara í smá tilbreitingu þar sem við höfum verið mjög lélegir við að gera eitthvað saman þennan vetur.
Ég kemmst sjálfur alla daganna þessa páska, ef ég verð með Ólaf Vigni þá tek ég hann bara með því það er um að gera að venja þetta strax við
»
23.03.2009 00:46:27 / Hjotti
Jæja kannski maður skrifi smá rullu um breytingar á Patrol. Bara svona fyrir Finn og já aðra sem hafa áhuga.
Very vell: Já ég keypti Chevy Silverrado 93, með 350TBI 700Skiftingu og NP-241 millikassa.
Þetta var allt svo fært yfir í patrol nema millikassinn þar sem að framskaftsúrtakið var öfugumeginn á honum. Ég náði mér í annan 241 kassa sem sneri rétt en þar sem að nýji kassinn var aftan af 400skiftingu og passaði þar af leiðandi ekki aftan á 700skiftinguna(annar rílufjöldi) þurfti ég að tæta báða kassana í sundur og flytja liðinn á milli sem tekur á móti öxlinum úr skiftingunni. Lítið mál var það já.
Allt rafmagn úr lettanum var tekið í heilu lagi með vélinni ásamt tölvu og svo var byrjað að grisja úr það sem ekki þurfti á að halda, var það mikið föndur þar sem að allt rafmagn frá sígarettu tengi aðgod knows what fylgdi með. En það kom allt á endanum. Tölvunni kom ég svo fyrir í hanskahólfinu.
Vélinn var sett oní til að byrja með tilliti til vatnskassa þar sem að hún rúmaðist vel að öðru leiti og small þetta allt sem flís við rass þar sem nóg af plássi var og skiftingin sem hékk aftan á gat ekki hitt betur á bitan sem var undir gamla kassanum.
Svo var millikassanum hent aftan á og farið að spá í sköftum? Þar sem millikassin er með dragliðnum áföstum fyrir afturskaftið var öllu draslinu aðeins hallað þar sem að var séð að nýja afturskaftið yrði ekki mikið lengra en það sem var áður. Svo var farið með öll sköft suður í Stál og Stansa þar sem voru smíðuð ný. Afturskaftið sem var í pickanum var stitt og settur jógi á það úr hinu aftur skaftinu, gamla patrol skaftið var notað að framan, aðeins stytt og settur jógi af hinu framskaftinu. Svo small þetta alveg eins og flís við rass.
Bensíndælan sem var í tanknum í pickanum var færð yfir í patrol tankinn. Svona dælur eru dýrar og hægt er að fá utanáliggjandi en ég ákvað að fara þessa leið. Þessi dæla vinnur á 12-17 bara þrýstingi, af því að þetta er innspítingarvél verður hún að geta slegið af og hert á sér eftir vinnslu.
Svo var hringt í ameríkuhrepp og óskað eftir varahlutum. Smurrofinn var ónýtur og sullaðist út um hann, strekkihjólið var ónýtt og svo voru verslaðar flækjur.
Svo kom púst smíði: Ekkert nema 2falt kerfi kom til greina, en flækjurnar frá ameríkuhreppi voru ekki til mikils gagns! Stýrisarmurinn var fyrir, og patrol var ekki nógu grindarbreiður fyrir þær! Flansinn á þeim lenti beint oná grind. En ekki voru árar lagðar í bát! Gömlu greinarnar voru teknar og boraðar aðeins út og beygðar smá svo flansar ættu greiðari leið og smá bútur tekinn úr grindinni öðru meginn. Svo sá Jörundur hinn galvaski faðir ævintýramannsins um að smíða púst undir herlegheitin. Einnig hefur hann séð nánast um tengingar á rafmagni þar sem ég geri ekkert nema brenna heilasellur og gretta mig þegar ég reyni það.
En nú er sem sagt staðan þessi að Patrol er nánast tilbúinn, aðeins eftir að græja handbremsuna, laga leka á bensínlögn og svo bara að sjá hvort allt virki ekki alveg örugglega.
Græjan var sett í gang um daginn og hrökk í fyrsta starti sem er góðs viti en var ekki höfð lengi í gangi sökum bensínslekans.
En já sem sagt allt að smella krakkar mínir. Og á vonandi eftir að svínvirka.
»
21.03.2009 17:27:42 / Finnur
Það stefnir allt í að töluverð breyting sé að verða á flota HFH á næstu misserum. Mig langaði að eins að renna yfir þær helstu sem ég veit um og hvetja menn til að lýsa þeim betur.
Hjörtur er að setja 350 chevy í sinn Patrol. Hann keypti pikkup sem hann notar sem líffæragjafa. Það væri gaman heyra hvernig það gengur og hvernig skipting og millikassi verða notuð.
Kristján Örn er að setja 4.2 turbo Nissan vél í sinn patrol. Hann keypti líka bíl með öllu og færir á milli. Veit ekki hvernig staðan er í dag en þessi mótor þykir víst lofa góðu.
Villi er að skipta um vél í sínum Hilux, hann náði sér í 3.0 Diesel úr 4runner. Þessi vél á eftir að fara þessum hilux vel og verður gaman að sjá útkomuna. Villi kemur kannski með nákvæma lýsingu.
Leó er víst að stefna á að 38" væða Cherokee, það verður hörkubíll.
Svo er nokkuð síðan að Gísli fór úr Hilux í Jeep Wrangler á 38" með 5.0 Mustang vél. Þar vantar víst bara herslu muninn á að hann komist á númer.
Síðan er ég enn að brasa við að klára minn t="on" />t="on" />Jeep CJ-7 en hann fer á 44" og er með 5.9 AMC rellu. Það verður tekin törn um páskana og vonandi stutt í fyrsta prufurúntinn.
Þetta stefnir í hörku flota, verður gaman að sjá útkomuna.
En endilega komið með betri lýsingu og nýjustu fréttir af breytingum.
kv. Finnur
»
01.03.2009 23:44:00 / Dóra
»
19.02.2009 01:01:34 / Hjotti
»
17.02.2009 19:27:11 / Gísli
Hugmyndin er að vera einhvern tíma með leikdag upp á tröllatunguheiði þegar snjór og tími leyfir og langar mig að sjá viðbrögðin hjá ykkur við því (já ég meina spóla í brekkum)

ps. er búinn að setja 44" dekk undir wrangler reyndar bara að framan kemur mjög vel út.
»
26.12.2008 01:50:04 / Villi
Mig langar að skrifa jólahugvekju um snjóalög.
Snjóalög eru lög, tvö eða fleiri af snjó, á mismunandi aldri og þroskastigi.
Snjóalag er eitt lag af snjó. og þá jafngamalt og jafnþroskað.
Þannig er það nú. En semsagt, nú stefnir í það að snjóalag nr. geti farið að myndast þar sem eitthvað hefur orðið eftir af snjó til fjalla eftir síðustu þýðu, það tryggir gott undirlag í lautir og lægðir og kemur vonandi til með að taka þátt í að skapa góðann snjó og skemmtilegann til að aka bifreiðum í. Já þetta voru nú bara svona vangaveltur í tilefni þess að nú er sólin farin að hækka á lofti, og er talað um að sólargangurinn lengist um u.þ.b 7 sekúndur á dag í fyrstu, sem gefur okkur því 49 sekúndna lengingu í viku þessari sem ég tel frá 22. - 29 Desember, já hlutirnir gerast hratt.
En annars vil ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og verum svo í sambandi sem fyrst, að ýmsu er að hyggja og af nógu er að taka (allavega ef maður á mörghundruð kindur if jú sí vot æ mín)
Jæja þetta eru pælingar nógar að sinni
»
24.11.2008 16:53:57 / Finnur
Hvað er að frétta af HFH meðlimum, eru allir dauðir úr krepputali.
Nú þegar allt í þjóðfélaginu snýst um svartsýni og böl, enginn sér fram á að hafa efni í jeppamennsku í framtíðinni, þá langar mig að fá smá spjall af stað.
Hvernig væri að rifja upp gömlu góðu dagana og skiptast á að segja sögur.
Frá þeim tímum þegar kjartan hafði tönn, Hjörtur átti súkku og Einar keyrði um á 4 hlaupara.
Þegar Villi keyrði um á stuttum cruiser og Kri. hans hafði áhuga á jeppamennsku.
Svo eru til ófáar sögur frá Hveravalla ferðum og fleiri skemmtilegum atriðum.
Hvað segið þið um að snúa við skeifunni og brosa aðeins yfir skemmtilegum sögum og Golden moments HFH.
»
21.10.2008 15:43:44 / JonIngi
Núna eru skálamál komin á hreint, við fengum skála á Hveravöllum. Fengum reyndar ekki þennan gamla heldur einhvern starfsmannaskála. Skálavörðurinn sagði Finni að 12 manns rúmist ágætlega í þeim skála. Miðað við áhuga manna þá verðum við eitthvað fleyri, líklegast um 15. Mig langar því að beina þeim tilmælum til para innan H.F.H. að vera dálítið ástfangin þessa helgi til að spara pláss, sem er bara gott því hver veit nema níu mánuðum eftir þessa ferð fjölgi heldur í hópnum 
Ég ætla að hringja í alla í vikunni og fá á hreint hvenær menn eru tilbúnir að leggja af stað á föstudeginum og hvar á að hittast. Ég er búinn að hringja í alla sem boðið er með, nema Kjartan afdalabónda sem aldrey næst í (ef þið hittið hann bjóðið honum með), þannig að endilega verið ekkert að gaspra í Pétur og Pál um ferðina. Reyndar kemur vinur hanns Finns líklegast með en Finnur sór þess dýran eið að vinurinn sá er ekki leiðinlegur.
Finnur tjáði mér líka að vanalega sé verðið fyrir skálann 1500 kr íslenskar (u.þ.b. 2,5 evrur) en útaf því að við fáum starfsmannaskálann verður eitthvað slegið af verðinu, komið sammt með 1500 kall til öryggis.
Fleyra er það ekki að sinni en ég kveð ykkur með þessarri vísu sem ég lærði nýlega eftir Ólaf heitinn bróður:
Hafa skalt í hámæli
að hættan leynist víða.
Einkum þó í alnæmi
ef allir fara'ð ríða!
»
10.09.2008 21:53:27 / Villi
Jæja, til að sýna smá lit fyrir komandi vetur þá eru breytingar á Hilux væntanlegar.
Til stendur að hann verði í vikuvist á Hvammstanga þar sem afturfjöðrun verður smíðuð undir hann.
Stífur, fóðringar, samsláttarpúðar- Pajero
Gormar- 4runner afturgormar, stífari en original eða aftur gormar úr pajero
Demparar, rúsínan í pylsuendanum og lykillinn að því að allt virki- LC 80 original.
Og ætti þetta allt að verða klárt í næstu viku.
(það verður að notast við pajero dót til að halda jafnvægi milli bílategunda innan hópsins, auk þess sem óhemja er til af slíkum hræjum til að hirða svona dót úr)
Roger...
»
Síður:
1 2 3 ...
11